09.12.1963
Efri deild: 24. fundur, 84. löggjafarþing.
Sjá dálk 110 í B-deild Alþingistíðinda. (108)

97. mál, ríkisreikningurinn 1962

Fjmrh. (Gunnar Thoroddsen):

Frv. til l. um samþykkt á ríkisreikningnum fyrir árið 1962 liggur hér fyrir. Við 1. umr. fjárlaga 22. okt. s.l. gerði ég grein fyrir afkomu ríkisins á árinu 1962 og þykir því ekki ástæða til að endurtaka þær upplýsingar hér. Ríkisreikningurinn sjálfur með aths. yfirskoðunarmanna, svörum ráðuneyta og till. yfirskoðunarmanna liggur hér einnig fyrir. Ég legg til, að frv. verði vísað til 2. umr. og hv. fjhn.