12.05.1964
Neðri deild: 99. fundur, 84. löggjafarþing.
Sjá dálk 1767 í B-deild Alþingistíðinda. (1193)

83. mál, Seðlabanki Íslands

Forseti (SB):

Ég endurtek, að ég hef enga löngun til þess að þrælka hv. þdm. Hv. Ed. hélt hins vegar áfram fundi til kl. 2.30 í gær, og ég treysti svo á þrek hv. þdm., að það muni ekki duga verr en þrek Ed.-manna, og ég mun freista þess að hefja umr. um málið. En ég vil að öðru leyti segja hv. 1. þm. Austf. það, að þetta mál hefur verið fyrir þinginu síðan 25. okt. í haust, þannig að þetta mál er mjög vel kunnugt hv. þdm.