08.05.1964
Neðri deild: 95. fundur, 84. löggjafarþing.
Sjá dálk 1948 í B-deild Alþingistíðinda. (1466)
128. mál, búfjárhald í kaupstöðum og kauptúnum
Matthías Bjarnason:
Herra forseti. Í sambandi við þær brtt., sem hér liggja fyrir á þskj. 605 frá meiri hl. heilbr.- og félmn., vil ég taka það fram, að ég var sá eini í n., sem var andvígur þessari brtt., að heimildin næði til allra kaupstaða og allra kauptúna.
Upprunalega var þetta frv. flutt að beiðni borgarstjórnar Reykjavíkur af tveimur þm. í Ed., sem sæti eiga í borgarstjórn. Síðan hefur það gerzt, að Akureyri, Kópavogur og Hafnarfjörður hafa óskað eftir því, að heimildin nái einnig til þeirra, og þegar frv. kom til Nd. og til heilbr.- og félmn., lá hér erindi frá hreppsnefnd Garðahrepps, og þar með hefði það verið samfellt svæði frá Reykjavík til Hafnarfjarðar. En beiðni frá öðrum kauptúnum eða kaupstöðum lá ekki fyrir. Hins vegar vildi hv, meiri hl. heilbr.- og félmn., án þess að þess væri neitt óskað, láta þessa beiðni ná til íbúa allra kauptúna með þúsund íbúa eða fleiri og allra annarra kaupstaða, þó að þeir hafi ekki óskað eftir að fá slíka heimild.
Ég tel rétt, að það komi fram, að þótt ég hafi ekki komið fram með neitt nál., var ég andvígur þessari breyt. og mun greiða atkv. gegn brtt. meiri hl. heilbr.- og félmn.