08.05.1964
Neðri deild: 95. fundur, 84. löggjafarþing.
Sjá dálk 1952 í B-deild Alþingistíðinda. (1470)

128. mál, búfjárhald í kaupstöðum og kauptúnum

Forseti (SB):

Út af tilmælum, sem orðuð hafa verið, um að fresta umr, um málið nú, vil ég aðeins taka það fram, að þar sem svo mjög er liðið á þingtíma, er ég hræddur um, að það gæti teflt afgreiðslu málsins í nokkra tvísýnu, ef umr. um það yrði frestað nú.