14.11.1963
Sameinað þing: 16. fundur, 84. löggjafarþing.
Sjá dálk 2208 í B-deild Alþingistíðinda. (1658)

Breytingar á ríkisstjórninni

Lúðvík Jósefsson:

Herra forseti. Það er skoðun okkar þm. Alþb., að þær formbreytingar, sem gerðar hafa verið á ríkisstj., breyti engu um stefnu hennar og markmið, og er því afstaða okkar til hins nýja ráðuneytis Bjarna Benediktssonar hin sama og afstaða okkar var til ráðuneytis Ólafs Thors. Alþb. er andvígt grundvallaratriðum í stefnu beggja ráðuneytanna og því í andstöðu við ríkisstj.