30.10.1963
Sameinað þing: 8. fundur, 84. löggjafarþing.
Sjá dálk 2216 í B-deild Alþingistíðinda. (1668)

Varamenn taka þingsæti - rannsókn kjörbréfa

Forseti (BF):

Mér hefur borizt svo hljóðandi

bréf:

„Reykjavík, 29. okt. 1963.

Matthías Bjarnason, 11. landsk. þm., hefur í dag ritað mér á þessa leið:

„Ég leyfi mér hér með að biðja um brottfararleyfi 2–3 vikur til að fara til útlanda í nauðsynjaerindum og, með skírskotun til 138. gr. laga um kosningar til Alþ., að óska þess, að fyrsti varamaður landsk. þm. Sjálfstfl., Ragnar Jónsson skrifstofustjóri, taki sæti mitt á Alþ., meðan ég verð fjarverandi.“

Þetta er yður, herra forseti, hér með tilkynnt með ósk um, að þér látið fram fara í Sþ. rannsókn á kjörbréfi varamanns.

Benedikt Gröndal,

forseti neðri deildar.

Til forseta sameinaðs Alþingis.“

Kjörbréf varamanns liggur fyrir, og verður gert fundarhlé, meðan kjörbréfanefnd rannsakar það. — [Fundarhlé.]