31.10.1963
Sameinað þing: 9. fundur, 84. löggjafarþing.
Sjá dálk 2217 í B-deild Alþingistíðinda. (1672)
Varamenn taka þingsæti - rannsókn kjörbréfa
Frsm. (Einar Ingimundarson):
Herra forseti. Kjörbréfanefnd hefur haldið fund til þess að rannsaka kjörbréf Axels Jónssonar, sem er varaþm. Sjálfstfl. í Reykjaneskjördæmi, en þess hefur verið óskað, að hann tæki nú sæti á Alþingi í fjarveru Matthíasar Á. Mathiesens, hv. 3. þm. Reykn. Kjörbréfanefnd sér ekkert athugavert við kjörbréfið og leggur því einróma til, að það verði samþykkt og kosning Axels Jónssonar tekin gild.