26.11.1963
Sameinað þing: 21. fundur, 84. löggjafarþing.
Sjá dálk 2219 í B-deild Alþingistíðinda. (1681)

Varamenn taka þingsæti - rannsókn kjörbréfa

Forseti (BF):

Mér hefur borizt svo hljóðandi bréf:

Reykjavík, 23. nóv. 1963.

Ingvar Gíslason, 5. þm. Norðurl, e., hefur í dag ritað mér á þessa leið:

„Þar sem ég er á förum til útlanda og verð fjarverandi næstu vikur, leyfi ég mér að biðja um fjarvistarleyfi og, með skírskotun til 138. gr. l. um kosningar til Alþingis, að óska þess, að 1. varamaður Framsfl. í Norðurl. e., Hjörtur Eldjárn Þórarinsson bóndi á Tjörn í Svarfaðardal, taki á meðan sæti mitt á Alþingi.“

Þetta er yður, herra forseti, hér með tilkynnt með ósk um, að þér látið fram fara í sameinuðu þingi rannsókn á kjörbréfi varamanns.

Sigurður Bjarnason,

forseti neðri deildar.

Til forseta sameinaðs Alþingis.“

Kjörbréf varamanns liggur fyrir, og verður nú gert hlé á fundinum, meðan kjörbréfanefnd rannsakar það. — [Fundarhlé.]