11.12.1963
Sameinað þing: 25. fundur, 84. löggjafarþing.
Sjá dálk 2220 í B-deild Alþingistíðinda. (1685)

Varamenn taka þingsæti - rannsókn kjörbréfa

forseti (BF):

Svo hljóðandi bréf hefur borizt: „Reykjavík, 10. des. 1963.

Ólafur Björnsson, 10. þm. Reykv., hefur í dag ritað mér á þessa leið:

„Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindum og verð fjarverandi næstu vikur, leyfi ég mér að biðja um fjarvistarleyfi og, með skírskotun til 138. gr. l. um kosningar til Alþingis, að óska þess, að 1. varamaður Sjálfstfl. í Reykjavík, Sveinn Guðmundsson vélfræðingur, taki á meðan sæti mitt á Alþingi.“

Þetta er yður, herra forseti, hér með tilkynnt.

Sigurður Ó. Ólafsson,

forseti efri deildar.

Til forseta sameinaðs Alþingis.“

Rannsókn á kjörbréfi Sveins Guðmundssonar hefur þegar farið fram, og tekur hann því nú sæti hv. 10. þm. Reykv.

Á 26. fundi í Sþ., 12. des., var tekin til meðferðar rannsókn kjörbréfs.