17.02.1964
Sameinað þing: 42. fundur, 84. löggjafarþing.
Sjá dálk 2224 í B-deild Alþingistíðinda. (1696)

Varamenn taka þingsæti - rannsókn kjörbréfa

Frsm. (Björn Fr. Björnsson):

Herra forseti. Kjörbréfanefnd hefur athugað kjörbréf 1. varaþm. Framsfl. í Vesturlandskjördæmi, Daníels Ágústínussonar, sem tekur nú sæti á Alþingi í forföllum Ásgeirs Bjarnasonar, 1. þm. Vesturl. Kjörbréfan. telur ekkert athugavert við kosningu né kjörbréf og mælir eindregið með því, að kosningin verði metin gild og kjörbréf varaþm. samþykkt.