24.02.1964
Sameinað þing: 45. fundur, 84. löggjafarþing.
Sjá dálk 2225 í B-deild Alþingistíðinda. (1701)

Varamenn taka þingsæti - rannsókn kjörbréfa

Forseti (BF):

Svo hljóðandi bréf hefur borizt: „Reykjavík, 28. febr. 1964.

Þórarinn Þórarinsson, 5. þm. Reykv., hefur ritað mér á þessa leið:

„Þar sem ég er á förum til útlanda og verð fjarverandi næstu vikur, leyfi ég mér að biðja um fjarvistarleyfi og, með skírskotun til 138. gr. l. um kosningar til Alþingis, að óska þess, að 1. varamaður Framsfl. í Reykjavíkurkjördæmi, Kristján Thorlacius deildarstjóri, taki á meðan sæti mitt á. Alþingi.“

Þetta er yður, herra forseti, hér með tilkynnt með ósk um, að þér látið fram fara í sameinuðu þingi rannsókn á kjörbréfi varamanns.

Sigurður Bjarnason,

forseti neðri deildar.

Til forseta sameinaðs Alþingis.“

Enn fremur hefur borizt svo hljóðandi bréf:

„Reykjavík, 28. febr. 1964.

Ágúst Þorvaldsson, 2. þm. Sunnl., hefur ritað mér á þessa leið:

„Vegna anna heima fyrir næstu vikur leyfi ég mér að biðja um fjarvistarleyfi og, með skírskotun til 138. gr. laga um kosningar til Alþingis, að óska þess, að 2. varamaður Framsfl. í Suðurlandskjördæmi, Matthías Ingibergsson lyfjafræðingur, taki á meðan sæti mitt á Alþingi.“

Þetta er yður, herra forseti, hér með tilkynnt með ósk um, að þér látið fram fara í sameinuðu þingi rannsókn á kjörbréfi varamanns.

Sigurður Bjarnason,

forseti neðri deildar.

Til forseta sameinaðs Alþingis.“

Kjörbréf beggja varamanna, sem hér um ræðir, liggja fyrir, og leyfi ég mér að biðja hv. kjörbréfanefnd að taka þau til rannsóknar. A meðan verður gert fundarhlé. — [Fundarhlé.]