21.04.1964
Sameinað þing: 67. fundur, 84. löggjafarþing.
Sjá dálk 2233 í B-deild Alþingistíðinda. (1721)

Varamenn taka þingsæti - rannsókn kjörbréfa

Frsm. (Matthías Á. Mathiesen):

Herra forseti. Kjörbréfanefnd hefur haft kjörbréf Einars Guðfinnssonar útgerðarmanns í Bolungarvik, sem nú er orðinn 2. varaþm. Sjálfstfl. í Vestfjarðakjördæmi, til athugunar, og þar sem fyrir liggur símskeyti frá fyrri varaþm. Sjálfstfl. í Vestfjarðakjördæmi, mælir kjörbréfan. með því, að kosning hans verði tekin gild og kjörbréfið samþykkt.