20.03.1964
Neðri deild: 72. fundur, 84. löggjafarþing.
Sjá dálk 2249 í B-deild Alþingistíðinda. (1771)

Þinghlé

Lúðvík Jósefsson:

Herra forseti. Ég vil fyrir hönd okkar þdm. þakka vinsamleg orð og góðar óskir hæstv. forseta í okkar garð. Ég vil jafnframt ósk hæstv. forseta gleðilegrar páskahátíðar, um leið og ég þakka honum fyrir ágætt samstarf við okkur þm. Ég bíð þm. um að taka undir óskir minar til hæstv. forseta með því að rísa úr sætum. — [Dm. risu úr sætum.]