02.03.1964
Neðri deild: 63. fundur, 84. löggjafarþing.
Sjá dálk 558 í C-deild Alþingistíðinda. (1916)
23. mál, jafnvægi í byggð landsins
Gísli Guðmundsson:
Herra forseti. Hinn 16. okt. 1963 var útbýtt í þessari hv. d. frv. til l. um ráðstafanir til að stuðla að jafnvægi í byggð landsins á þskj. 23, 23. mál Nd., flm., 6 að tölu, þm. þessarar hv. d. Hinn 21. okt. var þetta mál til umr. og því var þá vísað til hv. fjhn. þessarar d. Síðan eru liðnir 132 dagar, sem málið hefur verið til meðferðar í n., og vil ég biðja hæstv. forseta að hlutast til um, að n. skili áliti.