26.02.1964
Sameinað þing: 46. fundur, 84. löggjafarþing.
Sjá dálk 4 í D-deild Alþingistíðinda. (2303)
18. mál, viðgerðarþjónusta fiskileitartækja
Eggert G. Þorsteinsson:
Herra forseti. Ég vil aðeins skýra það, að ég er algerlega samþykkur þeim brtt., sem hv. allshn. hefur gert á þeirri till., sem hér er til umr., og tel, að þær skaði ekki meginhugmyndina, sem að baki till. liggur, um bætta þjónustu í þessum efnum. Ég vil þakka n. skjóta og góða afgreiðslu og tel, að hér sé merkur áfangi stiginn til bættrar þjónustu við þennan mikilvæga atvinnuveg. Ég ítreka það, að ég fellst á þær breytingar, sem n. hefur gert á till., og tel, að þar hafi vel verið að unnið.