13.05.1964
Sameinað þing: 78. fundur, 84. löggjafarþing.
Sjá dálk 224 í D-deild Alþingistíðinda. (2567)

132. mál, hægri handar akstur

Gísli Guðmundsson:

Herra forseti. Ég kvaddi mér hljóðs aðeins vegna þess, að ég skrifaði undir nál. með fyrirvara, og þennan fyrirvara gerði ég vegna þess, að þá hafði ekki borizt til n. umsögn um málið frá félagsskap sérleyfishafa, og ég taldi rétt að fresta því að taka afstöðu, þangað til sú umsögn hefði borizt. Nú hefur sú umsögn borizt og er jákvæð, og er þar með fallinn niður minn fyrirvari í þessu máli.