30.10.1963
Sameinað þing: 8. fundur, 84. löggjafarþing.
Sjá dálk 812 í D-deild Alþingistíðinda. (3266)
27. mál, afurðalán vegna garðávaxta
Fyrirspyrjandi (Páll Þorsteinsson):
Herra forseti. Ég þakka hæstv. landbrh. svör við þessari fsp., og ég tel ástæðu til að fagna því, að hann virðist hafa skilning á, að þetta mál sé fullkomlega réttmætt, sem hér er spurt um. Hins vegar verð ég að harma, að svör hæstv, ráðh. við fsp. minni eru engan veginn svo skýr og afdráttarlaus sem ég hefði vonazt eftir. Hann segir, hæstv. ráðh., að hann hafi ekki fengið endanlegt svar frá Seðlabankanum um það, hvaða fyrirgreiðslu sé að vænta á þessu hausti um afurðalán út á garðávexti. Hér sé um prinsipmál að ræða, sem ekki sé búið af hálfu Seðlabankans að taka afstöðu til, að mér skilst. Og því miður verð ég að segja, að síðari hlutinn af ræðu hæstv. ráðh. virtist mér draga nokkuð úr. að leiðir þættu greiðfærar til lausnar á þessu máli, þar sem hæstv. ráðh. fór að tala um, hve erfitt væri fyrir Seðlabankann að veita aukið fé til afurðalána og bankinn gæti það því aðeins, að hann fái aukið fé til varðveizlu. Þetta allt gefur ástæðu til að fara að ræóa afurðalánin í heild og raunar bankastarfsemina á allbreiðum grundvelli. En bæði er, að tími minn er nú takmarkaður og þessi fsp. var afmörkuð við vissan þátt þessara mála og gefur ekki tilefni til þess, svo að ég mun nú að þessu sinni láta það niður falla að ræða þessi vandamál almennt. En ég vil að lokum láta í ljós þá ósk og bera fram þá áskorun til hæstv. ráðh., að hann geri sitt ýtrasta til að hlutast til um, að þál., sem ég hef vitnað til, verði framkvæmd og að afurðalán út á garðávexti verði í engu takmarkaðri eða rýrari en afurðalán, sem veitt eru út á sauðfjárafurðir.