04.12.1963
Sameinað þing: 24. fundur, 84. löggjafarþing.
Sjá dálk 845 í D-deild Alþingistíðinda. (3305)
803. mál, flóabátaferðir og endurskoðun á rekstri Skipaútgerðar ríkisins
Fyrirspyrjandi (Jónas Pétursson):
Herra forseti. Ég vil leyfa mér að þakka hæstv. samgmrh. fyrir svörin. En það liggur nú fyrir, að það muni vera enn allmikið starf óunnið, áður en ætla má, að verulegar umbætur komist á í þessum málum, og ég vil nú strax sérstaklega bein~a þeim eindregnu tilmælum og áskorunum til hæstv. ráðh., að hann geri sitt til að hraða þessu máli eftir föngum. En ég vil aðeins vekja athygli á því, að það er vitanlega mikils virði að njóta leiðbeininga og álits erlendra sérfræðinga í málum okkar á flestum sviðum. En það ber þó að hafa í huga, að að lokum verða það þeir, sem hafa mesta þekkingu og reynslu, staðbundna þekkingu og reynslu af veðurfari og öðru, sem þessi mál snertir, flutningaþörf og samgönguþörf o.s.frv., sem koma til með að verða að leggja úrslitaorðíð á um þessi mál. Ég gert ráð fyrir því, að það sé alveg rétt, sem hæstv. ráðh. benti hér á að kæmi fram í áliti þessara sérfræðinga, að breyta þyrfti mjög til batnaðar um afgreiðslutækni víðs vegar um land hjá Skipaútgerðinni, en ég vil ekki síður vekja athygli á því, að ég hygg, að breyting á skipakostinum sé þó mesta eða stærsta atriðið, og í mínum huga er sá mikli rekstrarhalli, sem er á Skipaútgerð ríkisins nú, og þeir örðugleikar, sem eru á rekstri hennar, ekki sízt því að kenna, að sá skipakostur, sem hún hefur yfir að ráða, hentar ekki lengur því verkefni, sem á að leysa af hendi. Þessi skip eru byggð fyrir allmörgum árum, áður en vegakerfi var komið í það horf, sem það er nú, og áður en flugsamgöngur hófust að nokkru verulegu ráði, en hvort tveggja þetta hefur hatt ákaflega mikla breytingu í för með sér á þeirri þörf, sem er fyrir sjósamgöngurnar, auk þess sem stóraukin framleiðsla hefur svo kallað á miklu meiri vöruflutningaþörf en áður var. Ég vil þess vegna að lokum einmitt sérstaklega leggja áherzlu á þetta atriði við athugun málsins, að ég hygg, að breyting á skipakostinum sé það, sem muni vera einna þýðingarmest til þess að koma fram endurbótum á strandferðaþjónustunni.