13.02.1964
Efri deild: 47. fundur, 84. löggjafarþing.
Sjá dálk 763 í B-deild Alþingistíðinda. (467)

149. mál, aukatekjur ríkissjóðs

Fjmrh. (Gunnar Thoroddsen):

Herra forseti. Í l. nr. 40 frá 1954, um aukatekjur ríkissjóðs, er ákvæði um gjald af veitingabréfum fyrir embættum og sýslunum. Þetta gjald er mismunandi hátt fyrir skipunarbréf og miðað við launaflokk samkv. launalögum. Vegna þeirrar breytingar, sem er á orðin um skipan launamála opinberra starfsmanna, þarf að gera breytingu á þessum lögum, og er þetta frv. í því skyni flutt. Þar sem nú er ekki lengur um launalög að ræða, verður að miða þetta gjald við þá launaflokka, sem ákveðnir eru nú í kjarasamningum eða kjaradómi. Við ákvörðun gjaldflokka í frv. hefur verið reynt að komast sem næst þeirri skiptingu, sem gilt hefur til þessa.

Ég legg til, að frv. verði vísað til 2. umr. og hv. fjhn.