11.02.1964
Efri deild: 46. fundur, 84. löggjafarþing.
Sjá dálk 946 í B-deild Alþingistíðinda. (649)

111. mál, lyfsölulög

Dómsmrh. (Jóhann Hafstein):

Herra forseti. Það er um mjög smátt mál hér að ræða. Það er í raun og veru um það eitt að lengja frest, sem ákveðinn var í lyfsölulögunum á sínum tíma, til þess að sækja um, að sérlyf verði tekin á lyfjaskrá, sem var ákveðinn sex mánuðir, en er lagt til í þessu frv., að verði 12 mánuðir.

Ég legg til, að þessu máli verði vísað til heilbr.- og félmn. til athugunar og 2. umr.