11.10.1963
Sameinað þing: 0. fundur, 84. löggjafarþing.
Sjá dálk 10 í B-deild Alþingistíðinda. (7)
Rannsókn kjörbréfa
Frsm. 2. kjördeildar (Auður Auðuns):
Herra forseti. 2. kjördeild hefur athugað kjörbréf þm. í 1. kjördeild. Þá hafa verið athugaðar kærur, og um það vísa ég til þess, sem fram kom hjá frsm. 1. kjördeildar um efni þeirra kæra. Afstaða 2. kjördeildar til þeirra er sú hin sama og 1. kjördeildar og lagt til af 2. kjördeild, að kjörbréf þm. í 1. kjördeild verði tekin gild, en kæruatriðum verði vísað til væntanlegrar kjörbréfanefndar. Þau kjörbréf, sem hér er um að ræða, eru þessi: Benedikt Gröndal, Bjartmar Guðmundsson, Björn Pálsson, Eggert G. Þorsteinsson, Einar Olgeirsson, Geir Gunnarsson, Guðlaugur Gíslason, Gunnar Thoroddsen, Halldór E. Sigurðsson, Hermann Jónasson, Jóhann Hafstein, Jón Þorsteinsson, Lúðvík Jósefsson, Matthías Á. Mathiesen, Ólafur Thors, Páll Þorsteinsson, Ragnar Arnalds, Sigurður Ingimundarson, Skúli Guðmundsson og Þórarinn Þórarinsson.