29.04.1964
Neðri deild: 86. fundur, 84. löggjafarþing.
Sjá dálk 1087 í B-deild Alþingistíðinda. (754)

197. mál, Ljósmæðraskóli Íslands

Frsm. (Ágúst Þorvaldsson):

Herra forseti. Þessu frv. til l. um Ljósmæðraskóla Íslands var vísað til athugunar í heilbr.- og félmn. Hún sendi frv. til umsagnar Ljósmæðrafélags Íslands og fékk svar, þar sem Ljósmæðrafélagið leggur áherzlu á, að frv. fái að ná fram að ganga. N. hefur að öðru leyti athugað frv. og er nál. hennar prentað d þskj. 511, og leggur hún einróma til, að það nái fram að ganga, verði samþ.