06.05.1964
Efri deild: 83. fundur, 84. löggjafarþing.
Sjá dálk 1129 í B-deild Alþingistíðinda. (799)
110. mál, sjúkrahúsalög
Karl Kristjánsson:
Herra forseti. Ég vona, að það liggi alveg ljóst fyrir hv. dm., að þótt það sé ýmislegt í frv., sem þau byggðarlög njóta, sem nú eru með hús í smíðum, fram yfir það, sem áður var, njóta þau þess ekki fram yfir önnur sjúkrahús. En sá skaði, sem þau verða fyrir með breytingunni á 1., er sá, að þau missa 7% stofnkostnaðarstyrk, en önnur græða allt að 20% við lagabreyt., að því er stofnkostnaðarstyrk snertir. Það má vel vera, að þetta sé mál, sem snertir einna mest Húsavík, af því að hún er að byrja að byggja. Þó mun það snerta Siglufjörð líka í uppgjöri og Sauðárkrók. Húsavík er nýbyrjuð að byggja og undir gömlu lagaákvæði.
Hæstv. ráðh sagði, að ef till. yrði samþ. væri stofnað til óréttlætis, vegna þess að enginn munur væri ú því, hvort einhver byggð væri nýbyrjuð á því að reisa sjúkrahús eða önnur byggð byrjaði t.d. í júní eða júlí. Sá mikli munur er á þessu, að sú, sem byrjaður er, er undir lögum, sem ákveða aðilum 67% styrk, en sá, sem byrjar í júní eða júlí, byrjar undir 1., sem hafa ákveðið 60%. Einhvers staðar verður jafnan að draga línur í þessum efnum, og línan verður glögg, ef miðað er við gildistöku laganna.
Mér dettur ekki í hug að ætla hæstv. ráðh. það, að hann vilji ekki hlut Húsavíkur góðan. Ég hef enga ástæðu til þess. Ég hef margar ástæður til þess að ætla hið gagnstæða, að hann vilji Húsavík vel, ég hef oft reynt hann að því. En mér finnst, að í þessu efni sé hann of mikill línumaður og Húsavík verði þá dálítið fyrir barðinu á því, þó ekki ein.