28.04.1965
Neðri deild: 74. fundur, 85. löggjafarþing.
Sjá dálk 1112 í B-deild Alþingistíðinda. (1019)

188. mál, innlent lán

Eysteinn Jónsson:

Herra forseti. Ég vildi spyrja hæstv. fjmrh. um, til hvers þeim peningum var varið, sem teknir voru að láni samkv. þeirri lánsheimild af þessu tagi, sem samþ. var í fyrra. Ég man ekki til, að það hafi legið .fyrir hér upplýsingar um þetta.