30.04.1965
Neðri deild: 78. fundur, 85. löggjafarþing.
Sjá dálk 1119 í B-deild Alþingistíðinda. (1026)

188. mál, innlent lán

Frsm. meiri hl. (Davíð Ólafsson):

Herra forseti. Mál þetta er flutt af hæstv. ríkisstj. í Ed., og fjhn. þessarar d. hefur um það fjallað. N. hefur ekki getað orðið sammála um afgreiðslu málsins og hefur minni hl. eða réttara sagt tveir minni hl. skilað sér álíti um málið og lagt fram brtt. við frv. Meiri hl. n. vill afgreiða málið og leggur til, að frv. verði samþ. óbreytt.