27.10.1964
Neðri deild: 7. fundur, 85. löggjafarþing.
Sjá dálk 119 í B-deild Alþingistíðinda. (106)
10. mál, almenn hegningarlög
Dómsmrh. (Jóhann Hafstein):
Herra forseti. Frv. það, sem hér liggur fyrir, er ósköp smátt, og eins og fram kemur í grg., mun það hafa verið síðast 1950, að sú breyting var gerð á almennum hegningarl., að hækkað var úr 50 kr. í 1000 hámark þess tjóns, sem hin sérstaka ákæruregla í 2. mgr. 256. gr. hegningarl. miðast við, en í því felst, að ef engin sérstök atvik auka saknæmi og sökunautur, sem hlut á að máli, hefur ekki áður reynzt sekur um auðgunarbrot, þá verður aðeins opinbert mál höfðað, að sá krefjist þess, sem misgert er við. Nú er hins vegar lagt til samkv. þessu frv. að hækka þetta hámark úr 1000 kr. upp í 3000 kr., og er það gert í samráði við n. þá, sem vinnur að endurskoðun hegningarlaganna, og saksóknara ríkisins og miðast við breyttar aðstæður eða breytt verðlag frá því, að hámarkið var síðast ákveðið 1000 kr. 1950.
Ég leyfi mér að leggja til, að málinu verði að lokinni þessari umr. vísað til 2. umr. og hv. allshn.