30.04.1965
Neðri deild: 78. fundur, 85. löggjafarþing.
Sjá dálk 1334 í B-deild Alþingistíðinda. (1112)

187. mál, lausn kjaradeilu atvinnuflugmanna

Frsm. meiri hl. (Sigurður Bjarnason):

Herra forseti. Samgmn. d. hefur rætt þetta frv. á fundi sínum í morgun. N. bauð á þennan fund fulltrúum frá Félagi ísl. atvinnuflugmanna og Loftleiðum h/f. Enn fremur mætti flugmálastjóri á þessum fundi n.

Deiluaðilar Loftleiðadeilunnar skýrðu sjónarmið sín og svöruðu fsp. frá nm. Flugmálastjóri upplýsti m.a., að unnið væri að setningu reglugerðar um vinnutíma flugmanna í samræmi við hin nýju loftferðalög og mundi þeim undirbúningi sennilega lokið á næstu 6 mánuðum.

Rökin fyrir því frv., sem hér liggur fyrir, hafa verið margrædd og verða því ekki endurtekin hér að sinni. Meiri hl. samgmn. leggur til, að frv. verði samþ. óbreytt.