27.04.1965
Neðri deild: 72. fundur, 85. löggjafarþing.
Sjá dálk 1558 í B-deild Alþingistíðinda. (1282)
177. mál, menntaskólar
Frsm. (Benedikt Gröndal):
Herra forseti. Menntmn. hefur fjallað um frv. um menntaskóla og er einróma sammála um að mæla með samþykkt þess. Telur n., að með þessu frv. sé stigið mikilvægt skref í menntaskólamálunum og með því marki Alþ. stefnuna um það, hvar reisa skuli menntaskóla á næstu árum. Hitt er svo annað mál, sem unnið er að á öðrum vettvangi, hvernig námshögun verði í skólunum.
Menntmn. telur, að gera þurfi nokkrar breyt. á frv. í fyrsta lagi þykir rétt að ákveða staðsetningu Vestfjarðaskólans á Ísafirði og er það samkvæmt eindregnum óskum Vestfjarðaþingmanna hér í deildinni. Í öðru lagi þykir rétt að taka skýrt fram, að hugsanlegur skóli í nágrenni Reykjavíkur, sem mundi verða þriðji skólinn á þessu svæði, þurfi ekki að verða heimavistarskóli, enda mun það ekki hafa vakað fyrir þeim, sem frv. sömdu. Loks þykir ekki ástæða til að taka sérstaklega fram um 3 menntaskólana, að þeir skuli reistir, þegar fé er til þeirra veitt á fjárlögum, þar sem menntmrh. hefur þegar skýrt þinginu frá, að ríkisstj. hyggist gera till. um fjárveitingar til þessara skóla á fjárlagafrv. næsta ár.
Menntmn. hefur haft til umræðu þrjú önnur frv. um menntaskóla og telur n. þau vera efnislega afgreidd með samþykkt þessa frv.
N. mælir einróma með samþykkt frv. með þeirri breyt., sem er á þskj. 501.