03.05.1965
Efri deild: 78. fundur, 85. löggjafarþing.
Sjá dálk 1636 í B-deild Alþingistíðinda. (1451)
30. mál, rannsóknir í þágu atvinnuveganna
Gils Guðmundsson:
Herra forseti. Það eru aðeins fáein orð í sambandi við þetta mál nú við 1. umr.
Eins og hæstv. menntmrh. gat um í framsöguræðu sinni, þá er skammt til loka Alþ. að þessu sinni, sennilega um það bil aðeins vika til þinglausna og það verður vissulega að teljast miður farið, að Ed. skuli ekki eiga kost á að fjalla um þetta mikilvæga mál nema örfáa daga á mesta annatíma þingsins, ef það á annað borð á að koma þessu málí í gegn og gera það að lögum nú. Ég verð að segja, að mér þykir þetta mjög miður farið, því að hér er um að ræða fjölþætt frv., sem snertir marga aðila og þar koma fram vissulega mörg álitamál, eins og raunar má ráða af því, hversu seint hefur gengið að fjalla um þetta mál í hv. Nd. En þetta mun vera þriðja þingið, sem málið liggur fyrir þeirri d. og það er fyrst nú undir þinglok í þriðja skipti, sem skriður hefur komizt á málið og það kemur loksins til Ed.
En þrátt fyrir það, þó að tíminn sé mjög naumur og þar af leiðandi örðugt að fjalla um þetta stóra og fjölþætta mál á þann hátt, sem æskilegastur hefði verið fyrir þessa d. og þá n., sem fær málið til meðferðar, þá vil ég lýsa því yfir fyrir mitt leyti, að ég tel málið svo mikilsvert og svo mikið fengið með afgreiðslu þess í því formi, sem það nú er, að ég mun gera mitt til þess, að það nái fram að ganga á þessum skamma tíma. Það hefur vissulega skort hér heildarlöggjöf um rannsóknir í þágu atvinnuveganna, þann ramma, sem slíkum rannsóknum þarf að vera sniðinn og þó að eitt og annað kunni að orka tvímælis í sambandi við þetta frv., þá er svo mikið unnið að mínum dómi, að ég fagna því út af fyrir sig, að þessi skriður er þó kominn á málið.
Ég mun ekki fara að ræða hér einstök atriði, hvorki þau, sem ég hefði e.t.v. tilhneigingu til þess að gera aths. við, né atriði, sem ég tel að hefðu gjarnan átt að vera í þessu frv. Ég býst við að hafa tækifæri til þess í n. .En eins og ég sagði áðan, mun ég þrátt fyrir það, þó að mér finnist þetta allt of skammur tími fyrir d. til að fjalla um svona stórmál, gera mitt til þess, að málið nái fram að ganga og ég veit, að aðrir Alþb.-þm. í d. eru á sama máli.
Ég kvaddi mér nú hljóðs ekki sízt til þess að undirstrika það, að þetta eru í rauninni vinnubrögð, sem ekki ættu að endurtaka sig, að stórmál liggur mjög lengi hjá annarri d. og siðan gefst ekki kostur nema á örfáum fundum á mesta annatíma til þess fyrir síðari d. að fjalla um málið. Þetta ætti ekki að þurfa að endurtaka sig og það er sem sagt til eftirbreytni framvegis, eins og þar stendur.