08.05.1965
Neðri deild: 85. fundur, 85. löggjafarþing.
Sjá dálk 1648 í B-deild Alþingistíðinda. (1487)

167. mál, bann við okri

Frsm. (Matthías A. Mathiesen):

Herra forseti. Fjhn. þessarar hv. d, hefur haft þetta frv. til athugunar. Tvö önnur frv. hafði n. áður afgreitt og d. til hv. Ed. svipaðs eðlis, þ.e.a.s. frv. til l. um breyt. á l. um tékka og um breyt. á víxillögum. Hér er um að ræða sams konar breytingu á lögunum um bann við okri, dráttarvexti o. fl. og mælir n. með því, að vísu einn hv. nm. með fyrirvara.