16.11.1964
Neðri deild: 15. fundur, 85. löggjafarþing.
Sjá dálk 139 í B-deild Alþingistíðinda. (150)

6. mál, þingsköp Alþingis

Frsm. (Einar Ingimundarson):

Herra forseti. Ég get ekki að svo stöddu tekið beina afstöðu til þeirrar till. eða þeirrar uppástungu, sem hv. 5. þm. Austf. kom hér með, en hins vegar skal ég lofa því, að það verði kvaddur saman fundur í allshn. og þessi uppástunga hans eða till. tekin þar til athugunar.