11.05.1965
Neðri deild: 88. fundur, 85. löggjafarþing.
Sjá dálk 1671 í B-deild Alþingistíðinda. (1540)
199. mál, lántaka til vegaframkvæmda
Halldór E. Sigurðsson:
Herra forseti. Ég skal ekki fara að þreyta hér neitt málþóf eða ræða frekar um framkvæmd hæstv. ríkisstj. á vegamálunum og vegáætluninni. Það mál er svo ljóst, að það þarf ekki frekar skýringa við.
En í sambandi við það, sem ég sagði um niðurskurðinn til vegamálanna, vil ég taka eftirfarandi fram:
Hæstv. ráðh. sagði, að vegáætlunin væri ekki þannig úr garði gerð, að hún væri óbreytanleg. Það er rétt. En hann sagði líka, hæstv. ráðh., að það væri hægt að breyta henni með lögum. Ég endurtek, að það er ekkert atriði í vegáætluninni, sem heimilar niðurskurð á þeim framkvæmdum, sem gert er ráð fyrir í henni. Vegáætlunin byrjar svo, með leyfi hæstv. forseta:
„Alþingi ályktar samkv. III, kafla vegal. nr. 71 30. sept. 1963, að árið 1965–1968 skuli framkvæmdum í vegamálum hagað og vegir flokkaðir samkv. eftirfarandi vegáætlun.“
Það er engin heimild til þess að breyta þessu nema með því að breyta sjálfri vegáætluninni. Þess vegna flytur hæstv. ríkisstj. nú lagafrv. til þess að breyta þeim atriðum, sem hún telur sjálf, að verði að breytast og eins þyrfti að verða um þessar 47 millj. kr., ef það ætti að koma til framkvæmda niðurskurður á þeim árið 1965.
Ég vil því undirstrika þetta: Það mál hefur aldrei verið afgreitt í fjvn. Það er engin heimild í vegáætluninni til niðurskurðar og til þess að fá heimild verður að samþykkja lög hér á Alþ., sem breyta vegáætluninni frá því, að Alþ. gekk frá henni. Þess vegna mótmæli ég öllum aðgerðum í þá átt að skera niður þá vegáætlun, sem samþ. var af Alþ. 2. apríl 1965, og tel, að hæstv. ríkisstj. hafi enga heimild til þess, nema Alþ. samþykki þá heimild.