08.05.1965
Neðri deild: 85. fundur, 85. löggjafarþing.
Sjá dálk 2006 í B-deild Alþingistíðinda. (1948)

195. mál, eftirlaun ráðherra

Frsm. (Jónas G. Rafnar):

Herra forseti. Mál þetta er komið frá Ed., en þar var það afgreitt ágreiningslaust. Fjhn. Nd. hefur haft málið til meðferðar og er sammála um að mæla með því, að það verði samþ. óbreytt hér í þessari hv. þd.