13.10.1964
Neðri deild: 2. fundur, 85. löggjafarþing.
Sjá dálk 19 í B-deild Alþingistíðinda. (20)

Kosning fastanefnda

Forseti (SB):

Samkv. þingsköpum mega ekki vera fleiri en 5 þm. í hverri fastanefnd í deildum. Fram er hins vegar komið stjórnarfrv. um að hækka þessa tölu í 7. Þess hefur nú verið óskað, að þessi breyting á skipun nefnda kæmi til framkvæmda þegar í þingbyrjun. Ég legg því til, að samþ. verði þau afbrigði frá þingsköpum, að hver fastanefnd deildarinnar verði skipuð 7 þm. Verður leitað atkv. um þessi afbrigði.