05.02.1965
Sameinað þing: 25. fundur, 85. löggjafarþing.
Sjá dálk 2298 í B-deild Alþingistíðinda. (2063)

Stóriðjunefnd

Á 25. fundi í Sþ., 5. febr., utan dagskrár, mælti forseti (BF):

Hv. 5. þm. Austf. hefur kvatt sér hljóðs utan dagskrár, en ég vil leyfa mér að vekja athygli hv. alþm. á því, að til þessa fundar er fyrst og fremst boðað til þess að koma áleiðis þeim málum, sem á dagskránni eru. Þó mun ég gefa hv. 5. þm. Austf, orðið utan dagskrár í því trausti, að það mál, sem hann innleiðir, eða sú ræða, sem hann heldur, leiði ekki til allt of langra umræðna.