19.12.1964
Efri deild: 35. fundur, 85. löggjafarþing.
Sjá dálk 2333 í B-deild Alþingistíðinda. (2085)

Fyrirspurnir um stjórnarráðstafanir

Ólafur Jóhannesson:

Herra forseti. Ég hef kannske ekki tekið nægilega vel eftir, þegar hæstv. ráðh. talaði hér og mitt erindi hingað var aðeins að fá það staðfest, sem mér skildist hann segja, að það mundu verða afgreidd þau lán úr Búnaðarbankanum fyrir jól, sem loforð hefði verið gefið fyrir, — fyrirheit hefðu verið gefin um á sinum tíma.