29.10.1964
Neðri deild: 8. fundur, 85. löggjafarþing.
Sjá dálk 2344 í B-deild Alþingistíðinda. (2103)

Varamenn taka þingsæti - rannsókn kjörbréfa

Forseti (BF):

Svo hljóðandi bréf hefur borizt:

„Reykjavík, 5. nóv. 1964.

Matthías Á. Mathiesen, 3. þm. Reykn., hefur í dag ritað mér á þessa leið:

„Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindum og verð fjarverandi næstu vikur, leyfi ég mér, með skírskotun til 138. gr. l. um kosningar til Alþingis, að fara þess á leit, að 2. varamaður Sjálfstfl. í Reykn., Oddur Andrésson bóndi, Neðra–Hálsi í Kjós, taki sæti á Alþingi í fjarveru minni.“

Þetta er yður, herra forseti, hér með tilkynnt með ósk um, að þér látið fram fara í sameinuðu þingi rannsókn á kjörbréfi varamanns.

Sigurður Bjarnason,

forseti neðri deildar.

Til forseta sameinaðs Alþingis.“

Kjörbréf Odds Andréssonar liggur hér fyrir. Þar sem hann hefur ekki áður átt sæti á Alþingi, verður að fara fram rannsókn á því og vildi ég biðja hv. kjörbréfanefnd að taka bréfið til athugunar. Á meðan verður gert fundarhlé. — [Fundarhlé.]