11.11.1964
Sameinað þing: 10. fundur, 85. löggjafarþing.
Sjá dálk 2346 í B-deild Alþingistíðinda. (2109)

Varamenn taka þingsæti - rannsókn kjörbréfa

Frsm. (Einar Ingimundarson):

Herra forseti. Kjörbréfanefnd hefur haldið fund til að rannsaka kjörbréf Ragnars Jónssonar skrifstofustjóra í Reykjavík, sem er 1. varaþm. Sjálfstfl. í Suðurlandskjördæmi, en þess hefur verið óskað, að hann taki nú sæti á Alþingi í fjarveru Guðlaugs Gíslasonar, hv. 3. þm. Sunnl. N. finnur ekkert athugavert við kjörbréfið og leggur einróma til, að það verði samþ. og kosning Ragnars Jónssonar skrifstofustjóra verði tekin gild.