06.04.1965
Sameinað þing: 39. fundur, 85. löggjafarþing.
Sjá dálk 2349 í B-deild Alþingistíðinda. (2120)
Varamenn taka þingsæti - rannsókn kjörbréfa
Forseti (BF):
Svo hljóðandi bréf hefur borizt:
Reykjavík, 5. apríl 1965.
Guðlaugur Gíslason, 3. þm. Sunnl., hefur í dag ritað mér á þessa leið:
„Vegna aðkallandi starfa heima fyrir næstu vikur get ég ekki sinnt þingstörfum um nokkurn tíma. Vil ég því leyfa mér að biðja um fjarvistarleyfi og með skírskotun til 138. gr. l. um kosningar til Alþingis óska þess, að 2. varamaður Sjálfstfl. í Suðurlandskjördæmi, Sigfús J. Johnsen kennari í Vestmannaeyjum, taki sæti á Alþingi í fjarveru minni.“
Þetta er yður, herra forseti, hér með tilkynnt með ósk um, að þér látið fram fara í Sþ. rannsókn á kjörbréfi varamanns.
Sigurður Bjarnason,
forseti Nd.
Til forseta Sþ.“
Kjörbréf Sigfúsar J. Johnsens kennara í Vestmannaeyjum liggur hér fyrir, og vil ég biðja hv. kjörbréfanefnd að taka kjörbréfið til rannsóknar. — [Fundarhlé.]