04.05.1965
Sameinað þing: 46. fundur, 85. löggjafarþing.
Sjá dálk 2353 í B-deild Alþingistíðinda. (2131)

Varamenn taka þingsæti - rannsókn kjörbréfa

Frsm. (Matthías Á. Mathiesen):

Herra forseti. Kjörbréfanefnd hefur haft til athugunar kjörbréf Ásgeirs Péturssonar sýslumanns, 3. varauppbótarþm. Sjálfstfl. Eins og fram kom, situr 1. varauppbótarþm. á Alþ. nú, en 2. vara– þm., Hermann Þórarinsson, hefur tilkynnt, að hann geti ekki tekið sæti á Alþ. vegna anna. N. hefur athugað kjörbréfið og mælir með því, að kosningin verði tekin gild og kjörbréfið samþ.