07.05.1965
Sameinað þing: 48. fundur, 85. löggjafarþing.
Sjá dálk 2354 í B-deild Alþingistíðinda. (2134)

Varamenn taka þingsæti - rannsókn kjörbréfa

forseti (BF):

Borizt hefur svo hljóðandi bréf:

„Reykjavík, 6. maí 1965.

Hannibal Valdimarsson, 5. þm. Vestf., hefur í dag ritað mér á þessa leið:

„Þar sem ég er á förum til útlanda og mun ekki geta sinnt þingstörfum næstu vikur, leyfi ég mér að biðja um fjarvistarleyfi og með skírskotun til 138. gr. l. um kosningar til Alþingis að óska þess, að 1. varamaður Alþb. í Vestfjarðakjördæmi, Steingrímur Pálsson stöðvarstjóri; taki sæti á Alþ. í fjarveru minni.“

Þetta er yður, herra forseti, hér með tilkynnt.

Sigurður Bjarnason,

forseti Nd.

Til forseta Sþ.“

Steingrímur Pálsson, 1. varamaður Alþb. í Vestfjarðakjördæmi, hefur áður setið á þingi og rannsókn farið fram á kjörbréfi hans. Tekur hann nú sæti á þinginu sem 5. þm. Vestf., og býð ég hann velkominn til starfa á Alþingi.