21.12.1964
Neðri deild: 35. fundur, 85. löggjafarþing.
Sjá dálk 2364 í B-deild Alþingistíðinda. (2171)

Þingsetning

Lúðvík Jósefsson:

Ég vil fyrir hönd okkar þdm. þakka hæstv. forseta fyrir hlý orð og góðar óskir í okkar garð. Ég vil þakka forseta fyrir gott samstarf við okkur og góða og röggsamlega fundarstjórn. Ég vil óska hæstv. forseta og fjölskyldu hans gleðilegrar jólahátíðar og góðs og farsæls komandi árs. Ég bið þdm. að taka undir óskir mínar til forseta með því að rísa úr sætum. — [Dm. risu úr sætum.]