22.12.1964
Sameinað þing: 22. fundur, 85. löggjafarþing.
Sjá dálk 2365 í B-deild Alþingistíðinda. (2173)

Þingsetning

Á 22. fundi í Sþ., 22. des., mælti forsrh. (Bjarni Benediktsson):

Herra forseti. Forseti Íslands hefur gefið út svo hljóðandi forsetabréf:

„Forseti Íslands gerir kunnugt: Að ég, að tilskildu samþykki Alþingis, veiti forsrh. umboð til þess að fresta um sinn fundum Alþingis, 85. löggjafarþings, frá 22. des. 1964 eða síðar, ef henta þykir, enda verði þingið kvatt til funda á ný eigi síðar en 1. febrúar 1965.

Gjört að Bessastöðum, 18. desember 1964.

Ásgeir Ásgeirsson.

Bjarni Benediktsson.

Forsetabréf um frestun á fundum Alþingis.“

Samkv, þessu umboði og með vísun til samþykkis Alþingis í dag lýsi ég hér með yfir því, að fundum þessa Alþingis, 85. löggjafarþings, er frestað frá deginum í dag að telja og verður það kvatt til fundar á ný eigi síðar en 1. febrúar 1965.

Leyfi ég mér að árna hv. alþm. og starfsmönnum þingsins gleðilegra jóla og farsæls nýárs.