22.12.1964
Sameinað þing: 22. fundur, 85. löggjafarþing.
Sjá dálk 2365 í B-deild Alþingistíðinda. (2174)

Þingsetning

Forseti (BF):

Ég vil þakka hæstv. forsrh. fyrir hlýjar óskir í garð okkar þm. Ég óska öllum hv. þm. og fjölskyldum þeirra gleðilegra jóla og velfarnaðar á nýja árinu. Ég þakka þeim öllum samveruna og góða samvinnu á árinu, sem er senn á enda. Utanbæjarþm. óska ég góðrar heimferðar og heimkomu og ég óska þess, að við megum öll hittast hér heil, þegar þing verður kvatt saman á ný. Skrifstofustjóra og öðru starfsfólki þingsins vil ég einnig óska gleðilegra jóla og farsæls nýárs og þakka því vel unnin störf.