01.02.1965
Sameinað þing: 23. fundur, 85. löggjafarþing.
Sjá dálk 2365 í B-deild Alþingistíðinda. (2177)
Þingsetning
Á 23. fundi í Sþ., 1. febr., mælti forsrh. (Bjarni Benediktsson) :
Herra forseti. Hinn 20. janúar 1965 var gefið út svo hljóðandi forsetabréf:
„Forseti Íslands gjörir kunnugt: Ég hef ákveðið, samkv. till. forsrh., að Alþingi, 85. löggjafarþing, skuli koma saman til framhaldsfundar mánudaginn 1. febrúar 1985, kl. 14.
Gjört í Reykjavík, 20. janúar 1965.
Ásgeir Ásgeirsson.
Bjarni Benediktsson.
Forsetabréf um, að Alþingi skuli koma saman til framhaldsfundar.“
Samkv. þessu hefjast nú framhaldsfundir Alþingis.
Ég leyfi mér að óska hæstv. forseta og hv. alþm. og starfsfólki Alþingis gleðilegs árs og þakka þeim fyrir liðna.- árið, um leið og ég býð þá velkomna til þingstarfa á ný og læt í ljós þá ósk og von, að störf okkar megi verða landi og lýð til blessunar.