01.02.1965
Sameinað þing: 23. fundur, 85. löggjafarþing.
Sjá dálk 2366 í B-deild Alþingistíðinda. (2178)

Þingsetning

Forseti (BF):

Samkvæmt forsetabréfi því, sem hæstv. forseti hefur nú kunngjört, hefjast fundir Alþingis að nýju. Ég vil leyfa mér að þakka hæstv, forsrh. fyrir góðar óskir hans í minn garð og hv. þm. og ég óska honum og hv. þingheimi öllum velfarnaðar á nýbyrjuðu ári.