13.04.1965
Sameinað þing: 41. fundur, 85. löggjafarþing.
Sjá dálk 2366 í B-deild Alþingistíðinda. (2180)

Þinghlé

Á 41. fundi í Sþ., 13. apríl, mælti forseti (BF):

Forsetarhafa í samráði við ríkisstj. ákveðið að hafa hlé á fundum Alþ. vegna páskahátíðarinnar frá deginum í dag að telja og væntanlega til þriðjudagsins 20. apríl n. k. Verður næsti fundur að öðru leyti boðaður með dagskrá. Ég óska því öllum hv. þm. gleðilegrar hátíðar og sömuleiðis starfsfólki þingsins. Þeim þm., sem ferðast heim til sín um hátíðina, óska ég góðrar heimferðar og góðrar heimkomu og vona, að við hittumst allir heilir aftur að loknu páskaleyfi.