13.04.1965
Efri deild: 69. fundur, 85. löggjafarþing.
Sjá dálk 2367 í B-deild Alþingistíðinda. (2184)

Þinghlé

Ólafur Jóhannesson:

Ég vil þakka hæstv. forseta fyrir hlýleg orð í garð okkar þm. og ég vil leyfa mér og ég veit, að hv. þdm. taka þar undir; að óska honum og hans fjölskyldu gleðilegra páska og óska þess, að við megum hann heilan sjá hér að páskaleyfi loknu. Bið ég þingmenn um að taka undir þessi orð með því að rísa úr sætum. — [Dm. risu úr sætum.]