04.05.1965
Neðri deild: 81. fundur, 85. löggjafarþing.
Sjá dálk 415 í C-deild Alþingistíðinda. (2534)

130. mál, loðdýrarækt

Skúli Guðmundsson:

Herra forseti. Ég hef í hyggju að leggja fram brtt. við þetta frv., en af því að það var ekki fyrr, en um kvöldverðarleytið í gær, sem málið var afgreitt til 3. umr., hefur mér ekki gefizt tími til að ganga frá brtt. minni, og því vil ég fara þess á leit við hæstv. forseta, að hann fresti nú þessari umr. og taki málið út af dagskrá. Ég get heitið því að hafa mína brtt. tilbúna og væntanlega prentaða fyrir næsta fund d., svo framarlega sem hann verður ekki haldinn í dag. Vildi ég vænta þess, að hv. forseti sjái sér fært að verða við þessari ósk minni.