05.05.1965
Sameinað þing: 47. fundur, 85. löggjafarþing.
Sjá dálk 185 í D-deild Alþingistíðinda. (2757)

144. mál, tekjustofnar sýslufélaga

Frsm. (Halldór E. Sigurðsson) :

Herra forseti. Till. á þskj. 305 var send til fjvn., en hún var flutt af þm. Vesturlands samkv. ósk sýslunefndanna í Mýra- og Borgarfjarðarsýslu. Till. þessi fjallar um tekjustofna sýslufélaga, um endurskoðun lagaákvæða þar að lútandi. Við upphaf umr. í hv. þingi gerði 1. flm., hv. 4. þm. Vesturl., grein fyrir till. og mun ég þar engu við bæta. Fjvn. fékk þetta mál til meðferðar, eins og áður var sagt og var sammála um að leggja til, að till. verði samþykkt óbreytt.